Hún er bara svindl í þessari deild
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Hafdís Renötudóttir (Egill Bjarni Friðjónsson)

Valur vann sex marka sigur á Haukum í 16.umferð Olís-deildar kvenna um helgina, 29-23 eftir að hafa verið 17-13 yfir í hálfleik.

Valur var án Theu Imani Sturludóttir og Mariam Eradze en það skiptir litlu máli þegar Valur er með Hafdísi Renötudóttir í markinu.

,,Hún er bara svindl í þessari deild. Hún er með 40% markvörslu í hverjum einasta leik nánast,” sagði Stymmi klippari og Arnar Daði Arnarsson greip inní. ,,Og ef hún er ekki með þannig prósentu þá er Valur í basli. Þetta virðist bara snúast um það.”

,,Hafdís og Sandra Erlings. eru lang bestu leikmenn deildarinnar án þess að halla á einhverjar aðrar," bætti Klipparinn við.

Valur er á toppi Olís-deildarinnar með 28 stig, tveimur stigum meira en ÍBV en Valur fer í Skógarselið á laugardaginn og mætir þar ÍR í 17.umferð deildarinnar.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top