Framlengir við ljónin til 2028
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Mike Jensen (RONNY HARTMANN / dpa-Zentralbild / dpa Picture-Alliance via AFP)

Danski markvörðurinn, Mike Jensen hefur framlengt samningi sínum við Rhein Neckar Lowen til ársins 2028.

Mike Jensen gekk í raðir Rhein Neckar Lowen síðasta sumar eftir stutta veru hjá Veszprém í Ungverjalandi en félögin skiptu á markmönnum í sumar er sænski markvörðurinn, Mikael Appelgren var fenginn til Veszprém.

Mike Jensen hefur myndað markvarðarpar með þýska landsliðsmarkverðinum, David Späth hjá Rhein-Neckar Lowen á þessu tímabili en landsliðsmaðurinn, Haukur Þrastarson gekk í raðir félagsins fyrir tímabilið.

Þýska deildin fer aftur af stað á morgun með fimm leikjum en Mike Jensen og félagar hans í Lowen verða í eldlínunni á miðvikudaginn þegar liðið fær Kiel í heimsókn. Lowen eru í 7.sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með 22 stig, sex stigum á eftir Kiel sem eru í 5.sæti.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top