Dujshebaev kynntur sem nýr leikmaður Gummersbach
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Alex Dujshebaev (Gummersbach)

Fyrst var það Garðar Ingi Sindrason og nú er það spænski landsliðsmaðurinn Alex Dujshebaev sem gengur í raðir þýska úrvalsdeildarliðsins, Gummersbach. Gummersbach tilkynnti í dag að spænski landsliðsmaðurinn, Alex Dujshebaev myndi ganga í raðir félagsins frá og með næsta sumri frá Kielce í Póllandi.

Alex gerir samning við Gummersbach til ársins 2029 en þetta er risastór yfirlýsing frá Gummersbach um að þeir séu komnir til að vera í toppbaráttunni í þýsku úrvalsdeildinni en Alex hefur verið orðaður við félög í Meistaradeild Evrópu undanfarnar vikur og mánuði eða allt frá því að hann og Daniel bróðir hans, tilkynntu í upphafi tímabils að þetta væri þeirra síðasta tímabil í Póllandi.

„Ég er ótrúlega ánægður og stoltur af því að okkur tókst að semja við Alex,“ sagði framkvæmdastjóri Gummersbach, Christoph Schindler. ,,Eiginleikarnir sem Alex hefur eru augljósir. Hann verður afar mikilvægur þáttur í stefnumótun okkar á komandi árum. Sem fyrirliði Kielce og spænska landsliðsins hefur hann einstaka leiðtogahæfileika og reynslu, sem ungu leikmenn okkar munu sérstaklega njóta góðs af. Auk íþróttamannlegra eiginleika sem við fáum með komu hans, er þetta líka skýr yfirlýsing um hvert við viljum stefna. Ég, eins og allir aðdáendur VfL Gummersbach, hlökkum til að sjá Alex í Gummersbach treyjunni á næsta tímabili.“

Alex Dujshebaev er af mörgum talinn vera ein af betri hægri skyttum í heiminum í dag en hann hefur verið í herbúðum Kielce frá árinu 2017. Hann var hluti af liði Vardar sem vann Meistaradeildinat tímabilið 2016/2017 og þá hefur hann tvívegis orðið Evrópumeistari með Spáni á EM 2018 og EM 2020.

,,Þetta eru gríðarlega stór félagaskipti fyrir okkur. Við erum ótrúlega stolt og ánægð með að hafa tryggt okkur leikmann á þessu stigi. Við erum himinlifandi að hann trúi á framtíðarsýn okkar og sé tilbúinn að koma í þýsku úrvalsdeildinni. Við búumst við að hann geri liðið okkar betri," sagði Guðjón Valur og segir að þýska úrvalsdeildin geti hlakkað til komu hans í deildina.

,,Ég er ótrúlega stoltur af því að ganga til liðs við félag með svona ríka sögu og vera hluti af metnaðarfullu verkefni í þýsku úrvalsdeildinni, bestu deild í heimi. Lykilþáttur í ákvörðun minni voru samræðurnar sem ég átti við Guðjón Val og Christoph Schindler. Ég er tilbúinn að gefa allt fyrir þetta félag svo við getum náð markmiðum okkar og vaxið saman," sagði Alex.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top