Bjarni Fritzson (Sævar Jónsson
Bjarni Fritzson þjálfari ÍR var að vonum glaður með sigur sinna manna í kvöld á HK, 36-31. ÍR náðu góðu forskoti undir lok fyrri hálfleiks og hélt því allt fram til loka leiksins og sagði Bjarni að það hafi verið komið smá stress í sig undir lok leiksins. "Já það var komin smá þreyta í mannskapinn og já stress, sem er alveg eðlilegt hjá ungum leikmönnum sem hafa ekki unnið marga leiki." Bjarni segir að margt sem þeir hafi verið að undirbúa á æfingum undanfarið hafi gengið upp í dag og hann var gífulega ánægður með það. Viðtalið má sjá allt hér að neðan:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.