Varði tvö víti á níu sekúndum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Grétar Ari Guðjónsson (Haukar)

Grétar Ari Guðjónsson markvörður Hauka í Olís-deild karla gerði sér lítið fyrir og varði tvö vítaköst Eyjamanna á níu sekúndum í jafnri stöðu þegar fimm mínútur voru eftir af leik Hauka og ÍBV í síðustu umferð.

Það dugði þó hinsvegar ekki til því Eyjamenn fengu þriðja vítið í sömu sókninni sem Hákon Daði Styrmisson skoraði úr. ÍBV vann að lokum leikinn með einu marki með flautumarki frá Degi Arnarssyni.

Farið var yfir frammistöðu Grétars Ara og Petar Jokanovic markvarðar ÍBV í leiknum í Handboltahöllinni sem sýnd er öll mánudagskvöld í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans. Petar Jokanovic var frábær í marki ÍBV í leiknum og var valinn til að mynda í Cell-tech lið 17.umferðar hér á Handkastinu fyrir sína frammistöðu.

Petar Jokanovic hefur byrjað árið vel í Olís-deildinni en hann hefur verið í Cell-tech liði umferðarinnar á Handkastinu í fyrstu tveimur umferðum ársins.

Ótrúlegar vítavörslur Grétars og fleiri vörslu Petars í leiknum má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top