Breki Hrafn Árnason (Egill Bjarni Friðjónsson)
Breki Hrafn Árnason markvörður Fram lék ekki með liðinu í tapinu gegn KA í 17.umferð Olís-deildar karla á sunnudaginn. Breki Hrafn fékk skot í höfuðið í sigri Fram gegn Aftureldingu í leiknum á undan og gat af þeim sökum ekki leikið með Fram gegn KA í síðasta leik. Þetta staðfesti Einar Jónsson þjálfari Fram í samtali við Handkastið. Fram fer í heimsókn í Skógarselið næstkomandi föstudag og mætir þar ÍR í 18.umferð Olís-deildarinnar. Einar segir að staðan á Breka fyrir þann leik verði metin á fimmtudag og þá komi í ljós hvort Breki geti leikið gegn ÍR á föstudaginn. Fram er í 7.sæti Olís-deildarinnar með 18 stig en þrjú stig er í næsta lið í töflunni, ÍBV sem eru í 6.sætinu. Fimm umferðir eru eftir af Olís-deildinni áður en úrslitakeppnin fer af stað.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.