Ísak Gústafsson (Baldur Þorgilsson)
Tvö Íslendingalið áttu leik í kvöld í Svíþjóð og Danmörku en Kristianstad styrktu stöðu sína á toppi deildarinnar þegar liðið vann góðan sigur. Liðið tók á móti VästeråsIrsta á heimavelli í kvöld en Einar Bragi Aðalsteinsson var ekki með liðinu að þessu sinni. Lokatölur urðu 38-31 fyrir heimamenn sem eru áfram í efsta deildarinnar, þremur stigum á undan Malmö sem eiga þó leik til góða. Í Danmörku unnu Ringsted góðan útisigur á Sønderjyske, 25-30 en Ísak Gústafsson skoraði þrjú mörk úr sex skotum á meðan Guðmundur Bragi Ástþórsson lét óvenju lítið fyrir sér fara og skoraði aðeins eitt mark úr einu víti. Mikilvægur sigur fyrir gestina sem hoppuðu upp fyrir Sønderjyske með sigrinum og sitja nú í áttunda sæti deildarinnar en baráttan um topp 8 sæti er gífurlega jöfn og spennandi. Úrslit kvöldsins: Kristianstad 38-31 VästeråsIrsta Sønderjyske 25-30 Ringsted

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.