Snýr til baka eftir 10 mánaða fjarveru
Swen Pförtner / dpa Picture-Alliance via AFP)

Neobosja Simic markvörður Melsungen í þýsku úrvalsdeildinni birti færslu á Instagram síðu sinni í gær þar sem hann segir frá því að hann snúi til baka á völlinn í kvöld í fyrsta sinn í 10 mánuði en hann meiddist illa á hné í leik með Melsungen gegn Gummersbach í fyrra.

Simic sleit krossband í mars á síðasta ári en snýr nú til baka og verður í leikmannahópi Melsungen gegn Arnóri Þór Gunnarssyni og félögum í Bergischer í kvöld en um er að ræða fyrstu umferðina í þýsku úrvalsdeildinni á nýju ári.

Fjórir leikir fara fram í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Rhein Neckar-Lowen mætir Kiel klukkan 18:00 og stórleikur umferðarinnar er síðan leikur Magdeburg og Lemgo klukkan 19:00 en um er að ræða liðin í 1. og 3.sæti deildarinnar en Lemgo er spútnik lið tímabilsins til þessa í 3.sætinu með 30 stig, sex stigum á eftir Magdeburg.

Rúnar Sigtryggsson og Lærisveinar hans í Wetzlar fá Fuchse Berlín í heimsókn og loks er það leikur Bergischer og Melsungen.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top