
Dagur Máni Siggeirsson hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við uppeldisfélag sitt Stjörnuna til tveggja ára. Dagur Máni sem er fæddur árið 2009 hefur aðeins komið við sögu í nokkrum leikjum í Olís-deild karla í vetur með liði Stjörnunnar. ,,Við erum virkilega stolt af því að tilkynna ykkur að Dagur hefur skrifað undir tveggja ára samning við uppeldisfélagið. Dagur hefur farið í gegnum allt yngri flokka starfið hjá okkur og tekið miklum framförum á undanförnum misserum. Það er virkilega gaman að sjá uppalda unga leikmenn fara alla leið og semja við sitt félag. Við bindum miklar vonir við Dag í framtíðinni og hlökkum mikið til þess að fylgjast vel með hans framþróun í bláu treyjunni," segir í tilkynningunni frá Stjörnunni. Dagur Máni hefur verið viðloðandi yngri landslið Íslands síðustu ár og var til að mynda í æfingahóp 2008 landsliðsins fyrr á þessu tímabili.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.