Á heimleið en enginn veit þó hvert
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Casper Mortensen (Tom Weller / dpa Picture-Alliance via AFP)

Danski hornamaðurinn, Casper Mortensen liðsfélagi Einars Þorsteins Ólafssonar hjá Hamburg í þýsku úrvalsdeildinni er á heimleið til Danmerkur næsta sumar.

Danski hornamaðurinn hefur ákveðið ásamt fjölskyldu sinni að snúa heim til Danmerkur eftir ellefu ár í atvinnumennsku bæði í Þýskalandi og á Spáni. Í tilkynningunni kemur hinsvegar hvergi fram hvar hann mun leika á næstu leiktíð og virðast danskir handboltasérfræðingar ekki hafa hugmynd um það hvar Casper Mortensen mun leika á næstu leiktíð.

Danski miðilinn, Handballtransfer fullyrti í gærmorgun að hann væri á leið til Íslendingaliðsins, TMS Ringsted en tók þá fullyrðingu til baka síðar í gær. Hefur Handballtransfer velt þeirri spurningu upp hvort Mortensen sé á leið til Skjern eða Ribe-Esbjerg og þá hefur einnig því verið velt upp hvort hann sé í raun og veru mögulega að leggja handboltaskóna á hilluna.

Mortensen verður 37 ára í desember á þessu ári hefur verið í herbúðum Hamburg síðustu fimm ár en þar áður lék hann með Barcelona þrjú tímabil, meðal annars með Aroni Pálmarssyni. Þá hefur hann einnig leikið með Hannover-Burgdorf í Þýskalandi.

Mortensen á tvö gull með danska landsliðinu á stórmótum, á HM 2019 og á Ólympíuleikunum í Rio 2016.

Það verður athyglisvert að fylgjast með framvindu mála og sjá hvar Casper Mortensen endar eftir allt saman.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top