Hefur vakið mikla athygli og líkt við Mathias Gidsel
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Hjalte Lykke (THOMAS SJOERUP / Ritzau Scanpix via AFP)

Hjalte Lykke er dönsk hægri skytta sem leikur með danska úrvalsdeildarliðinu GOG. Hjalte Lykke er fæddur árið 2004 og hefur vakið athygli innan handboltans fyrir ótrúlega spilamennsku og kraftmikinn leikstíl sem hefur fengið marga handboltaáhugamenn til að draga fram samanburð við einn besta leikmann í heimi og landa hans, Mathias Gidsel.

Hjalte Lykke er alinn upp hjá HEI Håndbold en hefur verið hjá GOG frá árinu 2021. Leikstíll hans er svipaður og hjá Mathias Gidsel sem sjálfur lék hjá GOG áður en hann fór til Fuchse Berlín og hefur slegið þar í gegn undanfarin ár.

Lykke sjálfur segir að hann hafi bæði heyrt þessa samanburði oft og tekið því sem hrósi en hann sé líka vel meðvitaður um hve mikið Gidsel hefur áorkað á hæsta stigi. ,,Það er mikið hrós að vera líkt við Gidsel og ég þakka fyrir það, en það sem Mathias Gidsel hefur gert á síðustu árum er eitthvað sem fáir komast nálægt,“ sagði Lykke í samtali við HBOLD.dk. 

Hann viðurkennir að hann fylgist mikið með leikjum á stærsta sviðinu, meðal annars þýsku úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni til að læra og taka með sér góð atriði í sinn eigin leik. En hann gerir sér líka grein fyrir að það er mikill munur á að horfa á leikmenn „á skjánum“ og svo að framkvæma það sjálfur á vellinum. 

Lykke leggur áherslu á að hann vilji halda sínum leikstíl, sem einkennist af óbilandi áræðni, hraða og vilja til að takast á við varnarmenn á miklum hraða. Hann segir að þó samanburðurinn við Gidsel sé spennandi, þá sé gæði Gidsel næstum ómetanleg og erfitt að mæla sig við. 

Hér að neðan má sjá myndskeið af Hjalte Lykke í leik með danska unglingalandsliðinu fyrir tveimur árum þar sem sést hversu sterkur hann er maður á mann og með mikla útsjónarsemi.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top