Hvert fór Oscar Lykke í jólafríinu?
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Oscar Lykke (Egill Bjarni Friðjónsson)

Afturelding hefur farið illa af stað í Olís-deild karla eftir áramót og tapað öllum þremur leikjum sínum á nýju ári.

Eftir fjóra sigurleiki í röð í Olís-deildinni fyrir áramót hefur liðið nú tapað gegn Fram, Val og nú síðast gegn ÍBV í 18.umferð Olís-deildarinnar í vikunni. Rætt var um gengi Aftureldingar í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins.

Ágúst Ingi Óskarsson hefur verið frá vegna meiðsla og það hefur munað um minna sér í lagi þegar danski leikmaður Aftureldingar Oscar Lykke hefur átt afleita frammistöðu í þessum þremur leikjum.

Oscar Lykke hefur skorað fimm mörk úr 18 skotum í þessum þremur leikjum og alls ekki fundið sig.

,,Ég er bara að velta fyrir mér, hvert fór Oscar Lykke í jólafríinu? Hann hefur ekki verið svipur hjá sjón eftir áramót," sagði Stymmi klippari meðal annars um frammistöðu Oscars Lykke.

,,Málið er að hann er að drepast í bakinu og hefur verið mjög slæmur. Hann hefur ekki verið sami leikmaðurinn og fyrir áramót en það er vonandi að hann fái bót meina sinna," sagði Davíð Már Kristinsson sem var gestur í Handkastinu áður en Klipparinn benti honum á að bakmeiðsli séu ekkert löguð á einni nóttu.

Afturelding er í 5.sæti Olís-deildarinnar með 23 stig, stigi meira en KA sem mætir Val í lokaumferð 18.umferðarinnar í dag.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top