Segir Hannes Höskulds vera besta vinstri hornamann deildarinnar
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Hannes Höskuldsson (Egill Bjarni Friðjónsson)

,,Á ég að segja ykkur hver er besti vinstri hornamaðurinn í Olís-deildinni? Það er einn leikmaður sem er yfirburðar besti vinstri hornamaður í deildinni. Hannes Höskuldsson," sagði Arnar Daði Arnarsson, Sérfræðingurinn í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins og bætti við.

,,Hann er þriðji markahæsti leikmaðurinn í deildinni, aðeins með 37 mörk úr vítaköstum. Hannes hefur skorað fleiri mörk en Baldur Fritz sem er markahæsti leikmaður deildarinnar, úr opnum leik. Þetta er vinstri hornamaður, hann er með 67% skotnýtingu, þegar hann fer í gegn þá hef ég alltaf trú á að hann skori. Hann er með suddalega langa hendi, þvílíkan stökkkraft og hávaxinn."

,,Ég man þegar ég sá hann í umspilinu gegn Víking í fyrra, ég var í sjokki, alvöru armur," sagði Davíð Már en Hannes Höskuldsson hefur verið besti leikmaður nýliða Selfoss í Olís-deildinni í vetur en liðið hefur náð eftirtektarverðum árangri.

,,Ég held að overs línan hans á Coolbet hafi alltaf unnist í vetur," bætt Stymmi klippari við sem hatar ekki línurnar á Coolbet.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top