
Landsliðsmaðurinn, Teitur Örn Einarsson leikmaður Gummersbach er orðaður við þýska liðið Rhein-Neckar Löwen. Það er SportBild sem greinir frá. Rhein-Neckar Lowen leitar nú af miklum afli af örvhentri skyttu en allt bendir til þess að Ivan Martinovic verði seldur til Veszprém í sumar eins og við greindum frá fyrr í morgun. Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur Teitur Örn Einarsson verið opinn fyrir því að leita á önnur mið og yfirgefa Gummersbach en félagið sótti til sín hollenska landsliðsmanninn, Kay Smits frá Flensburg í sumar. Það liggur því beinast við að Rhein-Neckar Löwen íhugi að fá Teit til sín strax í sumar. Aðrar örvhentar skyttur hafa verið orðaðar við Lowen en þeir eru þó ekki samningslausir fyrr en á næsta tímabili. Um er að ræða Danann, Jacob Lassen leikmann HSV Hamburg. Lowen fékk til sín Danann, Edwin Aspenbäck frá danska úrvalsdeildarfélaginu Holstebro fyrr í sumar en hann var þó ekki hugsaður sem fyrsti kostur í hægri skyttu stöðuna hjá liðinu. Machulla þjálfari Rhein-Neckar Lowen þekkir vel til Teits því hann þjálfaði hann hjá SG Flensburg-Handewitt og fékk hann til liðsins frá Kristianstad.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.