Telja verkefnið í Bandaríkjunum bæði langt og snúið
{{brizy_dc_image_alt entityId=

GOG Handbold (Patrick Süphke / dpa Picture-Alliance via AFP)

Draumurinn um stórtæka uppbyggingu handboltans í Bandaríkjunum fyrir Ólympíuleikanna í Los Angels sumarið 2028 fær sérfræðinga í Þýskalandi til að efast. Á umræðufundi á vegum Handball-Bundesliga voru sérfræðingar sammála um að verkefnið yrði bæði langt og snúið.

Framkvæmdastjóri deildarinnar, Frank Bohmann, benti á að handboltinn sé nánast alfarið evrópsk íþrótt hvað varðar styrk, fjárfestingu og áhorf. Að festa rætur vestanhafs þar sem NFL og NBA drottna yfir markaðnum sé gríðarlega erfitt verkefni. Voru menn alfarið sammála um að ólíkt öðrum íþróttum sem vaxa út frá háskóla- og atvinnukerfum, þá hefur handboltinn enga slíka rót í bandarískri íþróttamenningu. Án sterkrar grunnuppbyggingar í NCAA eða yngri flokkum er vart hægt að vænta hraðrar þróunar.

Aðspurðir um möguleikann á aukinni athygli í tengslum við Ólympíuleikanna í Los Angeles 2028, sögðu sérfræðingarnir að það gæti skapað tímabundna athygli en það myndi ekki eitt og sér tryggja varanlegan sess handboltans í Bandaríkjunum. 

Þrjár megin ástæður fyrir því að erfitt verði að byggja upp handboltamenninngu í Bandaríkjunum:

Engin sterk hefð

Handboltinn á hvorki rætur í skólakerfi né háskóladeildum líkt og helstu bandarísku íþróttirnar.

Ruglandi nafn

„Handball“ í Bandaríkjunum vísar oft til annars konar veggbolta – ekki evrópska handboltans sem við þekkjum.

Risaíþróttir ráða ferðinni

Markaðurinn er þegar mettaður af stórum atvinnudeildum með risavaxna fjármuni og áhorfendahóp.

Spurningin er því ekki hvort hægt sé að byggja upp handbolta í Bandaríkjunum heldur hversu langan tíma það tæki og hversu mikla fjárfestingu þyrfti í grunninn.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top