Haukur Ingi Hauksson (Egill Bjarni Friðjónsson)
Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur Haukur Ingi Hauksson leikmaður HK verið í viðræðum við Íslands- og bikarmeistara Fram um að ganga í raðir félagsins næsta sumar. Haukur er einn af fjölmörgum leikmönnum í Olís-deild karla sem eru að renna út af samningi í sumar en Handkastið birti lista af 25 leikmönnum sem eru að renna út af samningi í sumar og gætu leitað annað. Haukur Ingi sem er fæddur árið 2004 hefur verið lykilmaður í liði HK í Olís-deildinni síðustu tvö tímabil og hefur hlutverk hans í liðinu stækkað ört. Nú virðist hinsvegar allt benda til þess að hann yfirgefi uppeldisfélag sitt í sumar og gangi í raðir Fram sem leikur í Lambhagahöllinni í Úlfarsárdalnum. Haukur Ingi er næst markahæsti leikmaður HK í vetur með 93 mörk, einu marki færra en Ágúst Guðmundsson. Fleiri leikmenn gætu verið á förum frá HK því samkvæmt heimildum Handkastsins eru þeir Hjörtur Ingi Halldórsson og Sigurður Jefferson líklegir til að ganga í raðir Hauka eftir tímabilið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.