Niklas Landin (HENNING BAGGER / Ritzau Scanpix via AFP)
Álaborg urðu í dag danskir bikarmeistarar þegar þeir unnu nokkuð öruggan og þægilegan sigur á Íslendingaliði Ringsted. Lokatölur urðu 34-24 fyrir dönsku meistarana sem einfaldlega ráða lögum og lofum yfir dönskum handbolta þessa stundina en þeir hafa ekki tapað stigi í deildinni það sem af er og þeir kláruðu bikarinn nokkuð örugglega. Niklas Landin var valinn besti leikmaður leiksins en hann átti hreint út sagt magnaða frammistöðu í marki Álaborgar. Hann gerði sér lítið fyrir og varði 13 af þeim 25 skotum sem hann fékk á sig í leiknum. Sem gerir rúmlega 56% markvörslu sem er með hreinum ólíkindum í bikarúrslitaleik. Landin sem verður 38 ára í desember á þessu ári hefur lagt landsliðskóna á hilluna en það hefur ekki haft áhrif á danska landsliðið en á ferlinum vann hann til sex gullverðlauna á stórmótum með danska landsliðinu og vann alls til tólf verðlauna með danska landsliðinu á stórmótum. Hann gekk í raðir Álaborgar frá Kiel sumarið 2023 og hefur sankað að sér titlunum frá því hann kom til Álaborgar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.