Oddur Gretarsson (Egill Bjarni Friðjónsson)
Oddur Gretarsson leikmaður Þórs fór af velli meiddur í fyrri hálfleik í fjögurra marka tapi liðsins gegn HK í síðustu umferð Olís-deildar karla. HK hafði betur 31-27 eftir að hafa verið 20-19 yfir í hálfleik. Oddur komst ekki á blað í leiknum áður en hann fór meiddur af velli eftir rúmlega 10 mínútna leik. ,,Þetta hefur eitthvað með hásinina að gera. Það er erfitt að segja til með framhaldið og þetta þarf bara að koma í ljós,” sagði Oddur í samtali við Handkastið sem sagði að það myndi skýrast í vikunni hvort hann verði með í mikilvægum leik gegn Selfossi í næstu umferð. Þór fer á Selfoss í 19.umferð Olís-deildarinnar en liðin eru í 9. og 11.sæti deildarinnar og munar einungis tveimur stigum á liðunum. Þór vann fyrri leikinn 31-28 og gætu því farið upp fyrir Selfoss með betri innbyrðis stöðu milli liðanna vinni þeir leikinn á laugardaginn. Það verður þó stórt högg skorið í lið Þórs ef Oddur verður ekki leikfær í leiknum mikilvæga en framundan er pása í Olís-deildinni eftir næstu umferð þar sem Final 4 helgin í Powerade-bikarnum er framundan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.