Spáir Val deildarmeistaratitlinum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ágúst Jóhannsson (Sævar Jónasson)

Eftir slæmt tap gegn Haukum í fyrsta leik eftir áramót hafa Valsmenn unnið Aftureldingu og KA nokkuð sannfærandi og hafa tyllt sér á topp Olís-deildarinnar á nýjan leik þegar einungis fjórar umferðir eru eftir.

Rætt var um toppbaráttuna í nýjasta þætti Handkastsins og farið yfir síðustu fjóra leiki Vals og Hauka sem eru í efstu tveimur sætum deildarinnar fyrir síðustu fjórar umferðirnar.

,,Ég verð að viðurkenna það miðað við hvernig Valur spilaði gegn Haukum þá sá ég ekki fyrir mér tvo sannfærandi sigra koma í kjölfarið gegn Aftureldingu og KA," opnaði Arnar Daði Arnarsson, Sérfræðingurinn umræðuna um Val en Valur vann KA 36-31 á heimavelli í lokaleik 18.umferðarinnar.

,,Mér líður eins og ég hafi verið gaslýstur af þjálfara Vals sem lét mig heyra það þegar ég spáði Valssigri gegn Haukum í 16.umferðinni. Það kom mér á óvart hvað þeir unnu þessa báða leiki sannfærandi. Ég var búinn að millifæra deildarmeistaratitilinn í Hafnarfjörðinn."

Síðustu leikir Vals á tímabilinu:
ÍR (Úti)
Fram (Heima)
HK (Heima)
ÍBV (Úti)

,,Einu stigin sem ég sé Val tapa í sínum leikjum er gegn ÍBV í lokaumferðinni," sagði Stymmi eftir að hafa skoðað hvaða leiki Valur á eftir og bætti við:

,,Ef Haukar vinna FH á fimmtudaginn sem ég held að þeir geri þá eru þeir í möguleika að verða deildarmeistarar en þá þurfa þeir að treysta á ÍBV gegn Val í lokaumferðinni. Það hefur alltaf verið hlýtt á milli Hauka og ÍBV.”

Síðustu leikir Hauka á tímabilinu:
FH (Heima)
Þór (Úti)
Selfoss (Heima)
HK (Úti)

,,Ef það er allt undir hjá Val til að verða deildarmeistarar í Eyjum í lokaumferðinni þá sé ég það ekki klikka,” sagði Sérfræðingurinn og benti á að Valur vann ÍBV með átta mörkum í fyrri umferðinni.

,,Valur verður deildarmeistari,” bætti Kristinn Björgúlfsson við í umræðuna þegar Sérfræðingurinn fór að herja á svör um það hvort Valur yrði deildarmeistari eða Haukar.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top