Hafþór Vignisson (Egill Bjarni Friðjónsson)
Eftir sigur á Stjörnunni í mikilvægum leik í 16. umferðinni hafa komið tveir tapleikir í röð hjá Þór gegn FH og HK en liðið er í harðri baráttu um síðasta lausa sætið í úrslitakeppninni og á sama tíma í mikilli fallbaráttu þar sem spennan á botni Olís-deildarinnar hefur sjaldan verið jafn hörð og nú. Rætt var um tap Þórs gegn HK í Kórnum í nýjasta þætti Handkastsins en HK hafði betur 36-31 en staðan var jöfn 27-27 þegar tíu mínútur voru til leiksloka. ,,Það sem er áhugavert úr þessum leik er að þessi leikur er meira og minna jafn allan leikinn þangað til í stöðunni 27-27 þegar 10 mínútur eru eftir. Þá kemur þetta sem einkennir þessi botnlið. Þór þarf bara að vinna meiri vinnu til að ná í sigur heldur en HK miðað við þann iðnaðarbolta sem þeir eru að spila,” sagði Kristinn Björgúlfsson sem var gestur í Handkastinu. Stymmi klippari velti fyrir sér hvort hópurinn hjá Þór væri nægilega stór og hvort það vantaði ekki bara meiri breidd og hvort leikmenn væru orðnir þreyttir undir lok leiks en Þórsarar töpuðu einnig gegn FH í þar síðustu umferð eftir að staðan hafi verið jöfn 19-19 og skammt til leiksloka. ,,Það gæti bara vantað meiri pung í þetta Þórslið,” sagði Kristinn. ,,Þeir fá fullt af flottum færum í lokin, það vantaði ekki,” bætti Stymmi klippari við og nefndi vítakast, hraðarupphlaup og fleiri góð færi sem fóru forgörðum hjá Þórsurum sem reyndust liðinu dýrkeypt þegar upp var staðið. Þórsarar fara á Selfoss á laugardaginn í 19.umferð Olís-deildarinnar í alvöru botnbaráttuslag nýliðanna en Selfoss er í 9.sæti deildarinnar á meðan Þór er í 11.sætinu. Tveimur stigum munar á liðunum en Þór getur farið upp fyrir Selfoss með sigri.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.