Freyr Aronsson (Sævar Jónasson)
Haukar unnu torsóttan tveggja marka sigur á Stjörnunni í 18.umferð Olís-deildar karla í síðustu viku. Farið var yfir leikinn í Handboltahöllinni sem sýnd er öll mánudagskvöld í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans. ,,Þetta er lang besti leikur Stjörnunnar í langan tíma og þar sem Jóel Bernburg átti virkilega fínan leik í þeirra herbúðum sem hlýtur að gefa þeim eitthvað í þeirri baráttu sem framundan er," sagði Hörður Magnússon meðal annars en Jóel var markahæstur í liði Stjörnunnar í leiknum með sjö mörk. ,,Hans Jörgen var líka góður og það voru margir sem voru að draga vagninn. Benedikt Marínó var með alltof marga tapaða bolta en margir góðir hlutir sem hann gerir inn á milli. Jóel var bestur. Maður hélt að þetta yrði 15 marka sigur Hauka eftir fyrstu 10 mínúturnar en þá tekur Hrannar leikhlé í stöðunni 6-2. Eftir það er leikur Hauka arfa slakur og þeir voru í miklum vandræðum," sagði Ásbjörn Friðriksson meðal annars. Haukar fá FH í heimsókn í 19.umferð Olís-deildar karla annað kvöld en Stjarnan fer í Mosfellsbæinn og mætir þar Aftureldingu í gríðarlega mikilvægum leik fyrir bæði lið sem enn eru án stiga á þessu ári. Umræðuna um leik Stjörnunnar og Hauka er hægt að sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.