Innkoma Breka gerði útslagið
Egill Bjarni Friðjónsson)

Fram vann ÍR í endurkomu sigri í 18.umferð Olís-deildar karla á föstudagskvöldið en Fram vann leikinn 28-26 eftir að hafa verið 14-20 undir þegar 20 mínútur voru eftir af leiknum.

Breki Hrafn Árnason kom inn í mark Fram á þeim kafla og gerði útslagið. Farið var yfir lokakaflann og innkomu Breka í mark Fram gegn ÍR í Handboltahöllinni í sýnd er öll mánudagskvöld í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans.

,,Hann kemur inn í stöðunni 20-16 og lokar markinu. ÍR skorar ekki í 6-7 mínútur eftir að hann kemur inn og ver aftur og aftur. Í kjölfarið fer Fram að spila miklu betri varnarleik og þarna er markvörðurinn að kveikja í vörninni. Varnarleikur Framara varð miklu sterkari við það að Breki byrjar að verja og síðan heldur hann áfram að verja og endar í 60% markvörslu," sagði Ásbjörn Friðriksson meðal annars í Handboltahöllinni.

Bæði lið verða í eldlínunni á föstudagskvöldið í 19.umferð Olís-deildar karla. Fram fær HK í heimsókn á meðan ÍR fær topplið Vals í heimsókn.

Umræðuna um innkomu Breka og lokamínúturnar í leik ÍR og Fram er hægt að sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top