Sjáðu þrjú glæsileg mörk í Kórnum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Andri Þór Helgason (Sævar Jónasson)

Andri Þór Helgason leikmaður HK, Halldór Kristinn Harðarson og Kári Kristján Kristjánsson leikmenn Þórs áttu það allir sameiginlegt að skora glæsileg mörk í leik HK og Þórs sem fram fór í Kórnum í 18.umferð Olís-deildar karla í síðustu viku.

Handboltahöllin sem sýnd er öll mánudagskvöld í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans vakti athygli á mörkunum þremur. HK hafði betur í leiknum og vann lífsnauðsynlegan sigur í fallbaráttunni.

Þór er hinsvegar í umspilssætinu, með 9 stig, stigi á eftir Stjörnunni og tveimur stigum á eftir Selfossi. Selfoss og Þór mætast í dag í næst síðasta leik 19.umferðarinnar sem lýkur á morgun með leik KA og ÍBV.

Mörkin þrjú er hægt að sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top