Stjarnan kveður Adam
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Adam Thorstensen (Sævar Jónasson)

Eins og Handkastið greindi frá á dögunum hefur Adam Thorstensen markvörður Stjörnunnar samið við þýska B-deildarliðið VfL Lübeck-Schwartau og gengur í raðir félagsins eftir tímabilið.

Adam gekk í raðir Stjörnunnar sumarið 2020 frá ÍR og er því að klára sitt sjötta tímabil með Stjörnunni. Stjarnan tilkynnir á samfélagsmiðlum sínum í dag að Adam sé búinn að semja við þýska liðið.

,,Eftir sex ára dvöl er komið að því að kveðja, en hann hefur staðið vaktina með mikilli prýði, sýnt stöðugar framfarir og þroskast í lykilmann í okkar liði. Adam hefur klárlega lagt sitt af mörkum innan vallar jafnt og utan. Nú tekur við spennandi kafli hjá honum þar sem hann hefur skrifað undir samning hjá VfL Lübeck-Schwartau í Þýskalandi þar sem hann fær tækifæri til að spila í sterkari deild og halda áfram að þróast sem leikmaður. Stjarnan þakkar Adam kærlega fyrir tímann sinn í Stjörnutreyjunni og óskum honum góðs gengis í nýju verkefni. Hann verður ávallt velkominn aftur í Stjörnutreyjuna," segir í tilkynningunni frá Stjörnunni.

Stjarnan á ennþá fjóra leiki eftir í Olís-deildinni en liðið er í 10.sæti deildarinnar með 10 stig en liðið hefur tapað sjö leikjum í röð. Stjarnan er tveimur stigum frá sæti í 8-liða úrslitum og á sama tíma ekki nema þremur stigum frá botnsæti deildarinnar.

Adam verður í eldlínunni með Stjörnunni í Mosfellsbænum á fimmtudagskvöldið þegar Stjarnan mætir Aftureldingu í 19.umferð deildarinnar.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top