Saknar frammistöðu Einars Baldvins fyrir áramót
Egill Bjarni Friðjónsson)

Rætt var um frammistöðu Einars Baldvins Baldvinssonar markvarðar Aftureldingar í fyrstu þremur leikjum liðsins eftir áramót en Afturelding hefur tapað öllum þremur leikjum sínum á nýju ári. Liðið fær Stjörnuna í heimsókn í 19.umferð Olís-deildarinnar í kvöld.

,,Hann kom vörninni oft í gang fyrir áramót með því að byrja að verja dauðafæri. Þá kom barátta og trú í vörnina í framhaldinu. Maður saknar þess svolítið. Hann þurfti ekki alltaf góða vörn til þess að verja fyrir áramót,“ sagði Ásbjörn Friðriksson sem var gestur í Handboltahöllinni síðasta mánudagskvöld en Handboltahöllin er sýnd öll mánudagskvöld í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans.

Einar Baldvin æfði með íslenska landsliðinu í aðdraganda Evrópumótsins eftir frábæra frammistöðu í Olís-deildinni fyrir áramót en hann ásamt Aftureldingar liðinu hefur ekki fundið sig í fyrstu þremur leikjum ársins.

Eftir fjóra sigurleiki í röð fyrir áramót hefur liðið nú tapað gegn Fram, Val og nú síðast ÍBV í Eyjum. Afturelding mætir Stjörnunni klukkan 19:00 en Stjarnan hefur tapað sjö leikjum í röð og einungis unnið einn af síðustu tólf leikjum en það var níu marka sigur gegn Íslands- og bikarmeisturum Fram 21. nóvember.

Umræðuna um Einar Baldvin í Handboltahöllinni er hægt að sjá hér að ofan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top