Tæplega 100 dagar frá síðasta sigurleik Stjörnunnar
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Stjarnan (Sævar Jónasson)

95 dagar eru frá því að Stjarnan vann síðast leik í Olís-deild karla en sá sigur kom gegn Íslands- og bikarmeisturum Fram í Úlfarsárdalnum, 15. nóvember en sá leikur var í 11.umferð Olís-deildarinnar. Stjarnan lék frábærlega í þeim leik og vann með níu mörkum 33-24.

Stjarnan náði mest 14 marka forskoti í leiknum í stöðunni 33-19 en Fram skoraði fimm síðustu mörk leiksins.

Síðan þá hefur liðið leikið sjö leiki og tapað þeim öllum en liðið mætir Aftureldingu í 19.umferð Olís-deildarinnar annað kvöld klukkan 19:00. Líkt og Stjarnan hefur Afturelding tapað öllum þremur leikjum sínum árið 2026.

Stjarnan hefur einungis unnið einn leik af síðustu tólf í Olís-deildinni en næst síðasti sigur leikur Stjörnunnar kom á Selfossi í 6.umferðinni þegar Stjarnan vann Selfoss með þremur mörkum 36-33. Sá leikur kom einungis nokkrum dögum eftir tap Stjörnunnar gegn Grill66-deildarliði Fjölnis í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins.

Stjarnan hefur því í heildina einungis unnið tvo leiki af síðustu fimmtán leikjum sínum bæði í deild og bikar. Stjarnan hóf tímabilið af miklum krafti og fékk sjö af þeim tíu stigum sem liðið hefur fengið í vetur í fyrstu sex umferðum deildarinnar.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top