Juri Knorr (HENNING BAGGER / Ritzau Scanpix via AFP)
Juri Knorr er ekki í leikmannahópi Álaborgar í kvöld þegar liðið fær Kolstad í heimsókn í fyrstu umferð Meistaradeildarinnar eftir áramót. Sömu sögu er að segja af Benedikt Gunnari Óskarssyni leikmanni Kolstad. Þýski landsliðsmaðurinn hefur glímt við hné meiðsli síðan á Evrópumótinu en hann lék með Álaborg um helgina þegar liðið tryggði danska bikarmeistaratitilinn um helgina eftir sigur gegn GOG í undanúrslitum og TMS Ringsted í úrslitunum. Félagið hefur hinsvegar tekið ákvörðun um að hann verði ekki með í leiknum gegn Kolstad í dag. Fjarvera hans gegn Kolstad bendir til þess að Álaborg vilji ekki taka neina áhættu með Knorr. Álaborg verður einnig án Patrick Wiesmach og Simon Hald í leiknum gegn Kolstad en Sigvaldi Björn Guðjónsson og Sigurjón Guðmundsson eru í leikmannahópi Kolstad en Benedikt Gunnar Óskarsson er fjarri góðu gamni en samkvæmt heimildarmanni Handkastsins meiddist Benedikt í leik með Kolstad um síðustu helgi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.