Mynd úr leik HBH í vetur. (Eyjólfur Garðarsson)
Nökkvi Guðmundsson leikmaður HBH, sem leikur í Grill 66-deildinni var í dag úrskurðaður í þriggja leikja bann á aukafundi aganefndar HSÍ sem fram fór í dag. Nökkvi fékk beint rautt spjald undir lok leiks HBH gegn Hvíta iddaranum í Grill66-deildinni 13. febrúar síðastliðinn í stöðunni 27-22 fyrir Hvíta riddarann. Hvíti riddarinn vann leikinn með sex mörkum 29-23. Nökkvi hlaut útilokun með skýrslu vegna sérstaklega hættulegrar aðgerðar í leik Hvíta Riddarans og HBH í Grill 66 deild karla 13. febrúar. ,,Greinargerð handknattleiksdeildar HBH hefur borist aganefnd sem hefur kynnt sér þau sjónarmið er þar koma fram sem og myndbandsupptökur af leikbrotinu. Telur aganefnd framangreind gögn ekki gefa tilefni til að hverfa frá mati dómara leiksins á leikbrotinu eins og því er lýst í skýrslu dómara," segir í dómi aganefndar. ,,Með vísan til framangreinds er leikmaðurinn úrskurðaður í þriggjað leikja bann, sbr. 10. gr. reglugerðar um agamál. Aganefnd vekur athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 11. gr. sömu reglugerðar. Leikbannið tekur gildi kl. 12.00 á hádegi þann 19. febrúar 2026, sbr. 1. mgr. 7. gr. reglugerðar HSÍ um agamál."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.