Garðar Ingi Sindrason (J.L.Long)
19.umferðin fer af stað í Olís-deild karla með tveimur leikjum í kvöld. Í Mosfellsbænum tekur Afturelding á móti Stjörnunni en í Hafnarfirðinum er Hafnarfjarðarslagur þegar Haukar taka á móti FH í nágrannaslag af bestu gerð. Handkastið fékk fjóra spekinga til að spá í spilin fyrir stórleikinn í kvöld en Haukar eru í 2.sæti deildarinnar með 26 stig, tveimur stigum á eftir toppliði Vals en FH-ingar eru stigi á eftir Haukum í 3.sæti deildarinnar og geta því farið upp fyrir Hauka með sigri í kvöld. Andri Már Eggertsson: Haukar 33 - 30 FH FH-ingar verða einu marki yfir í hálfleik en í síðari hálfleik nær Grétar Ari í dauðalásinn og lokar markinu sem mun skila sér í auðveldum mörkum hjá Haukum og heimamenn sigla fram úr um miðjan seinni hálfleik og þetta endar í þriggja marka sigri Einar Ingi Hrafnsson: Haukar 28 - 31 FH Það er alltaf sérstakt að spila tvo leiki í röð gegn sama liðinu, fyrst í deild og svo í bikar. En nú er Final 4 framundan sem er extra stórt og gefur þessum leik auka twist. Það er oftast eitthvað hik í hausnum á mönnum komandi inn í síðasta leik fyrir bikar helgina. Ég ætla ekki að segja að menn spari sig og hvað þá í Hafnarfjarðarslag, en það vill enginn meiðast í þessum leik. Ég sé fyrir mér góðan FH sigur 31-28. Haukar hafa ekki verið sannfærandi eftir flugeldasýninguna gegn Val fyrir tveimur vikum og tilkoma Arons á bekkinn hjá FH er algjör leikbreytir. Það hefur hentað Haukum illa þegar lið eru að gera taktískar breytingar inní leikjunum, þannig viðvera Arons gæti leyst einhver vandamál FH í miðjun leik sem gera gæfumuninn. Eigum við ekki að segja að Haukar mæti sterkari inní leikinn, vilja svara fyrir síðustu tvær frammistöður og koma sér í gír fyrir næstu helgi, en FH loki þessu í seinni, breyta einhverju taktískt, stoppa Frey Arons og vinna. Þessir leikir eru alltaf eitthvað extra, vetrarfrí framundan og ekkert betra en að mæta á völlinn. Haukar hljóta að opna betri stofuna, fimmtudagskvöld 1-2 ölsen, burger og alvöru Hafnafjarðarslagur. Annars er það bara Sjónvarp Símans í opinni dagskrá. Ég held að fjörðurinn verði hvítur þessa vikuna, svo sjáum við til hvað næsta vika ber í skauti sér. Þórður Már Sigfússon: Haukar 28 - 29 FH El clásico – baráttan um fjörðinn. Annað og þriðja sætið að berjast. Forleikur að undanúrslitum bikarsins. Þessi leikur verður aldrei neitt annað en spennuþrungin barátta. Þrátt fyrir 5 sigurleiki í röð hefur spilamennska FH höktað, sérstaklega eftir EM pásuna, á meðan frammistaða Hauka hefur verið brokkgeng, eins og sást gegn Val og ÍBV. Þarna mæstast tveir af bestu leikmönnum deildarinnar, þeir Garðar Ingi Sindrason og Skarphéðinn Ívar Einarsson og munu þeir báðir bjóða upp á skotsýningu. Tvö rauð spjöld fara á loft í leik sem FH vinnur með marki í lokasókn leiksins. Theodór Ingi Pálmason: Haukar 28 - 29 FH El Classico íslenska handboltans. Áhugaverður leikur sérstaklega í ljósi þess að liðin spila enn mikilvægari leik í final4 eftir viku. Þetta er samt alveg lúmskt mikilvægur leikur. Bæði lið eiga smá möguleika á deildarmeistaratitli en að sama skapi að detta niður í 4-5 sæti ef allt fer til fjandans í lokaumferðunum. Ég held að FH vinni þennan leik 28-29 í háspennuleik. Garðar Sindrason verður með stórleik. 8 mörk og 6 stoðsendingar. Ég vil sjá hann taka yfir þessa deild núna fram á vor og sýna að hann sé tilbúinn að taka næsta skref. Svona svipað og við sáum Hauk Þrastarson og Gísla Þorgeir gera, þegar þeir voru á sama aldri og fóru út.
Óvæntur sigur Hauka í ljósi vonbrigði vikunnar þar sem allir HK-ingarnir sem orðaðir voru við félagið sögðu nei við að semja við Hafnarfjarðarliðið

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.