Tim N’Guessan (Gerard Franco/DAX Images/NurPhoto / AFP)
Meistaradeild Evrópu fór aftur af stað eftir langa pásu í gær þegar fjórir leikir fóru fram. Með sigri Barcelona á útivelli gegn Pick Szeged er ljóst að bæði Magdeburg og Barcelona hafa tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og sleppa við fyrstu umferð útsláttarkeppninnar. Þá stendur Álaborg vel að vígi í hinum riðlinum en liðið er með sjö stiga forskot á Veszprém sem eiga þó leiki inni en Veszprém mætir Kielce á útivelli í Póllandi í dag. Hér að neðan má sjá hápunkta úr leikjum gærkvöldsins: Álaborg - Kolstad 36-24 Pick Szeged - Barcelona 27-35 Zagreb - PSG 24-35 Magdeburg - GOG 37-30

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.