Veszprém án lykilmanns í Póllandi
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Nedim Remili (Ayman Aref / NurPhoto via AFP)

Ungverska liðið Veszprém verður án franska landsliðsmannsins, Nedim Remili í leik sínum gegn Kielce í 11.umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar í dag. Leikurinn hefts klukkan 17:45 en fjórir leikir er á dagskrá Meistaradeildarinnar í dag.

Nedim Remili er fjarverandi vegna veikinda en um gríðarlega mikilvægan leik er að ræða fyrir Veszprém en tapi liðið í kvöld er ljóst að liðið kemst ekki beint í 8-liða úrslit keppninnar þar sem Álaborg og Fuchse Berlín standar betur að vígi.

Veszprém er í þriðja sæti riðilsins með 12 stig en Kielce er í 5.sætinu með níu stig og gæti farið upp fyrir Sporting með sigri en Sporting leikur gegn Nantes í Frakklandi klukkan 19:45.

Vinstri hornamenn íslenska landsliðsins, Orri Freyr Þorkelsson og Bjarki Már Elísson verða því í eldlínunni í Meistaradeildinni í dag.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top