Bjarni Ófeigur Valdimarsson (Egill Bjarni Friðjónsson)
KA gerði sér lítið fyrir og vann eins marks sigur á ÍBV á heimavelli í lokaleik 19.umferðar Olís-deildar karla í dag 29-28. ÍBV var yfir í hálfleik 15-13. ÍBV hafði yfirhöndina nánast allan fyrri hálfleikinn og náði mest þriggja marka forystu, fyrst í stöðunni 3-6. Eyjamenn hófu seinni hálfleikinn betur og komust skoruðu þrjú fyrstu mörk seinni hálfleiksins og voru skyndilega komnir í 13-18. Í stöðunni 17-22 ÍBV í vil fór hinsvegar allt í baklás og þá kom 8-2 kafli KA í völ sem breytti stöðunni í 25-24 sér í vil. Mikil spenna var á lokamínútum leiksins þar sem KA var með undirtökin og komst meðal annars í 27-25 og 28-26. ÍBV jafnaði hinsvegar metin í stöðunni 28-28. Giorgi Dikahaminjia skoraði hinsvegar sigur mark leiks þegar rúmlega 2 mínútur voru eftir af leiknum. ÍBV fékk tvær sóknir til að jafna metin en þeim mistókst það í bæði skiptin. Í milli tíðinni varði Morgan Goði Garner frábærlega eftir sirkustilraun KA-manna. Ágúst Elí Björgvinsson varði 15 skot í marki KA og endaði með 35% markvörslu. Einar Rafn Eiðsson var markahæstur í liði KA með 9 mörk og Arnór Ísak Haddsson skoraði sex. KA voru án Bjarna Ófeigs Valdimarssonar og Morten Boe Linder sem gerir þennan endurkomusigur þeirra enn merkilegri. Hjá ÍBV voru þeir Hákon Daði Styrmisson og Andri Erlingsson markahæstir með sjö mörk hvor. Daníel Þór Ingason skoraði þrjú mörk úr sjö skotum en hann skoraði öll mörk sín í seinni hálfleik. Elís Þór og Sveinn Jose Rivera skoruðu einnig þrjú mörk. KA fer upp fyrir ÍBV með sigrinum og eru nú í 5.sæti deildarinnar með 24 stig, stigi á eftir Aftureldingu sem er í 4.sætinu. ÍBV er í 6.sætinu eftir tapið með 23 stig. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.