Hannes Höskuldsson (Sigurður Ástgeirsson)
Selfoss og Þór mættust í botnbaráttu slag á Selfossi í leik sem var að ljúka í Olís deild karla. Jafnræði var með liðunum lengst af og staðan í hálfleik var 17-17. Þórsarar mættu grimmir inn í seinni hálfleik og lönduðu að lokum gríðarlega mikilvægur sigri en loktölur á Selfossi voru 33-35 fyrir Þór sem lyftir sér upp úr fallsæti með þessum sigri. Hannes Höskuldsson var stórkostlegur í liði Selfossar í dag en hann skoraði ellefu mörk. Sölvi Svavarsson og Tryggvi Sigurbergsson skoruðu báðir sex og aðrir minna. Hafþór Már Vignisson var markahæstur í liði Þórs en hann skoraði níu mörk í dag. Oddur Grétarsson skoraði sjö og Brynjar Hólm Grétarsson sex. Nikola Radovanovic var öflugur í marki gestanna í dag en hann varði ellefu bolta. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.