Snorri vill sjá Viktor Gísla áfram í Barcelona
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Viktor Gísli Hallgrímsson (Javier Borrego / Spain DPPI / AFP)

Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari Íslands var spurður út í þann orðróm um að Gummersbach hefði áhuga á að fá landsliðsmarkvörðinn Viktor Gísla Hallgrímsson til sín frá Barcelona, þegar Snorri mætti í Handkastið og gerði upp Evrópumótið á dögunum.

Snorri var spurður að því hvort hann vildi sjá Viktor ganga í raðir Gummersbach og spila í þýsku úrvalsdeildinni í stað þess að vera áfram í Barcelona á Spáni.

,,Vissulega er þýska úrvalsdeildin betri og það er meiri þungi og meiri pressa en ég ætla ekki að ráðleggja mönnum að fara frá Barcelona. Ég held að Viktor Gísli sé á góðum stað þar. Hann var ekki eins góður núna og hann var á HM í fyrra og það er bara staðreynd og allt í góðu með það. Það bara gerist en hann er okkar lang besti markvörður. Við þurfum klárlega á honum að halda."

Snorri Steinn segir það full mikla einföldun að tengja saman spilamennsku Viktors Gísla á Evrópumótinu við stöðu hans hjá Barcelona á tímabilinu en Viktor Gísli hefur verið varamarkvörður á eftir Emil Nielsen hjá Barcelona.

,,Hann er búinn að vera undanfarin ár í umhverfi, hjá Nantes sem hann var ekkert mjög sáttur með, fer síðan til Póllands til Wisla Plock í eitt ár og á þá í kjölfarið þetta frábæra HM mót. Síðan skiptir hann aftur um lið. Það er allskonar hlutir sem spila inn í. Hann er í einu besta liði í heiminum og er að spila með besta markmanni í heimi og er að koma í nýtt land. Það að Emil er að spila meira en hann og stærri leikina er örugglega eðlilegasti hlutur í heimi. Ég hef frekar trú á því að Viktor vaxi í það að vera alvöru markvörður í Barcelona og ég held að það væri frekar einhver draumastaða fyrir mig."

,,Ég er heldur ekki hrifinn af því að leikmennirnir séu að skipta um lið eftir hvert einasta tímabil af því þeir halda að allt sé betra annarsstaðar. Þetta snýst líka um að festa rætur og díla við það sem þú ert að gera. Þú tekur ákvörðun um að fara einhvern og þú verður að standa og falla með henni," sagði Snorri Steinn meðal annars.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top