Sigursteinn Arndal (Egill Bjarni Friðjónsson)
Sigursteinn Arndal þjálfari FH sagði í viðtali við Handkastið eftir sjö marka sigur á Haukum í 19.umferð Olís-deildar karla í síðasta fimmtudag að hann væri spenntur fyrir því að mæta Haukum öðru sinni í vikunni. Haukar og FH mætast nefnilega aftur á sama stað í undanúrslitum Powerade-bikarsins næstkomandi fimmtudag en KA og ÍR mætast í hinum undanúrslitaleiknum. Leikur Hauka og FH hefst klukkan 18:00 á fimmtudaginn. ,,Við erum að sjálfsögðu spenntir fyrir undanúrslitunum. Við höfum ekki verið fastagestir í Final 4 undanfarin ár og ég ætla alveg að viðurkenna það að þetta er bikar sem okkur langar mikið í. Ég vil nota tækifærið og biðla til allra FH-inga að mæta og styðja okkur.” FH hefur haft betur í báðum viðureignum sínum gegn Haukum í Olís-deild karla í vetur en liðið er í 2.sæti deildarinnar með 27 stig, stigi meira en Haukar sem eru í 3.sætinu með 26 stig. FH lék síðast í undanúrslitum bikarkeppninnar tímabilið 2021/2022 er liðið fékk skell gegn Val í undanúrslitum, 37-27. FH varð bikarmeistari síðast tímabilið 2018/2019 eftir þriggja marka sigur á Val, 27-24.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.