37 ára Landin gerir þriggja ára samning við Álaborg
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Niklas Landin (HENNING BAGGER / Ritzau Scanpix via AFP)

Markvörðurinn ótrúlegi, Niklas Landin hefur skrifað undir nýjan samning við dönsku meistarana í Álaborg og er nú með samning við félagið til ársins 2029. Danska félagið tilkynnir þetta á samfélagsmiðlum sínum nú í morgunsárið.

Niklas Landin sem er í dag 37 ára verður 38 ára seint í desember á þessu ári. Landin er á sínu þriðja tímabili með dönsku meisturunum en hann gekk í raðir félagsins frá Kiel sumarið 2023. Hann var hjá Kiel í átta tímabil en þar áður lék hann með Rhein Neckar Lowen.

Landin hefur ekki gefið kost á sér með danska landsliðinu á undanfarin stórmót en sögusagnir eru uppi um að hann sé búinn að leika sinn síðasta landsleik en hann var í 35 manna hóp Dana fyrir Evrópumótið í janúar og hélt því opnu að koma inn ef þess þyrfti.

Hann lék rúmlega 280 landsleiki fyrir danska landsliðið á ferlinum en hann vann til sex gullverðlauna á stórmótum, síðast á Ólympíuleikunum í París 2024.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top