KA gæti leikið þrjá leiki á sjö dögum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Einar Rafn Eiðsson - Andri Snær Stefánsson (Egill Bjarni Friðjónsson)

Það hefur vakið athygli margra að leikur KA og ÍBV í 19.umferð Olís-deildar karla er settur á í dag, sunnudag en um er að ræða síðasta leikinn í 19.umferðinni sem hófst síðasta fimmtudag með tveimur leikjum.

Ástæðan fyrir því að þessi leikdagur vekur athygli er sú að KA er á leið í undanúrslit Powerade-bikarsins á fimmtudag þegar liðið mætir ÍR. ÍR lék sinn leik í 19.umferðinni á föstudagskvöldið og Haukar og FH sem mætast í hinum undanúrslitaleiknum mættust á fimmtudagskvöldið.

Handkastið sló á þráðinn til Andra Snæs Stefánssonar þjálfara KA og spurði hann út í það, hvernig stæði á því að KA væri að spila heimaleik sinn gegn ÍBV í dag, einungis fjórum dögum fyrir undanúrslitaleik í bikar. Sigri KA leikinn gegn ÍR verða þeir aftur í eldlínunni á laugardaginn þegar úrslitaleikurinn fer fram.

KA gæti því leikið þrjá leiki á sjö dögum. Leikurinn í dag hefst klukkan 14.45 og er sýndur í beinni á Handboltapassanum.

,,Það er ekkert mikið hægt að segja við þessu. Í fyrsta lgi er KA-heimilið bókað fyrir blakmót alla helgina og svo vilja ÍBV koma um helgi sem er eðlilegt þar sem annars væru 2-3 virkir dagar sem færu í þennan leik hjá þeim. Ef einhverjir skilja það þá eru það við á landsbyggðinni. Þetta eru bara staðan og aðstæðurnar sem við erum í. Fyrir mér er þetta ekkert vandamál," sagði Andri Snær í samtali við Handkastið.

Um er að ræða virkilega mikilvægan leik fyrir bæði lið en ÍBV er í 5.sæti deildarinnar með 23 stig en KA í sætinu fyrir neðan með 22 stig. KA gæti því farið upp fyrir ÍBV með sigri í dag.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top