240 marka menn vantaði í lið KA gegn ÍBV
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Morten Boe Linder (Egill Bjarni Friðjónsson)

Þrátt fyrir að í lið KA hafi vantað Bjarna Ófeig Valdimarsson og Morten Boe Linder kom það ekki að sök þegar liðið mætti ÍBV í KA-heimilinu í gær í lokaleik 19.umferðar Olís-deildar karla.

Bjarni Ófeigur sem er annar markahæsti leikmaður Olís-deildarinnar með 147 og Morten Boe Linder sem er þriðji markahæsti leikmaður KA á tímabilinu með 93 eru báðir meiddir og léku ekki með KA í sigrinum í gær. Samtals hafa þeir skorað 240 mörk fyrir KA sem voru fyrir leikinn í gær 40% af mörkum KA í deildinni.

ÍBV var með fimm marka forskot í leiknum í seinni hálfleik í stöðunni 15-20 en þá sneru KA menn taflinu við á sínum gríðarlega sterka heimavelli sem er sá sterkasti í deildinni en liðið hefur sótt 16 stig í 10 heimaleikjum í Olís-deildinni í vetur.

KA verður í eldlínunni í undanúrslitum Powerade-bikarsins á fimmtudaginn næstkomandi þegar liðið mætir ÍR klukkan 20:15. Óvíst er hvort Bjarni Ófeigur og Morten Linder verði með KA í þeim leik en Norðmaðurinn fór úr axlarlið fyrir skemmstu.

Rætt var um sigur KA gegn ÍBV í nýjasta þætti Handkastsins.

,,Það er í raun ótrúlegt að ÍBV hafi ekki fært sér þetta í nyt að klára leikinn fyrir norðan," sagði Davíð Már Kristinsson í Handkastinu í gær.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top