Einar Jónsson (Egill Bjarni Friðjónsson)
Það er ekki oft sem þjálfarar í handbolta taka leikhlé þegar liðið á vítakast. Það gerði hinsvegar Einar Jónsson þjálfari Íslands- og bikarmeistara Fram í sigri liðsins gegn HK í síðustu umferð. Hvort Einar hafi verið meðvitaður um það eður ei - er ekki vitað en Einar Jónsson tók leikhlé á sama tíma og dómarar leiks dæmdu vítakast eftir brot Hauks Inga Haukssonar á Eið Rafn Valssonar. Ekki er ólíklegt Einar hafi haldið að dómarnir hafi verið að dæma fríkast en rúmlega 10 sekúndur voru eftir af fyrri hálfleiknum á þessum tímapunkti. Farið var yfir þetta óvænta leikhlé Einars í Handboltahöllinni sem sýnd er öll mánudagskvöld í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans. Þar viðurkenndi Hörður Magnússon og Ásbjörn Friðriksson að þeir hafi aldrei séð þjálfara taka leikhlé undir þessum kringumstæðum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.