Bjarni Fritzson (Sævar Jónasson)
Botnlið ÍR í Olís-deild karla verður í eldlínunni í undanúrslitum Powerade-bikarsins á fimmtudagskvöldið klukkan 20:15 þegar liðið mætir KA í seinni undanúrslitaleik keppninnar. Fyrr um kvöldið mætast FH og Haukar. Bjarni Fritzson þjálfari ÍR hefur sent stuðningsmönnum ÍR skilaboð í gegnum samfélagsmiðla ÍR og hvetur ÍR-inga til þess að mæta á Ásvelli á fimmtudaginn og styðja ÍR-liðið í Final 4. Skilaboð Bjarna til stuðningsmanna ÍR eru eftirfarandi: Kæru ÍR-ingar nær og fjær. Mig langar að hvetja ykkur til þess að mæta á Ásvelli fimmtudaginn kl 20:15 og styðja við strákana okkar í Final Four. ÍR-strákarnir okkar er lið sem allir ÍR-ingar og Breiðhyltingar geta verið stoltir af. Liðið samanstendur af ungum uppöldum og afar hæfleikaríkum strákum úr hverfinu sem blæða hvítu og bláu. Alveg eins og það á að vera. Þessir strákar eru miklir félagsmenn, vinna vel í starfinu okkar og alltaf tilbúnir að leggja fram hjálparhönd. Til marks um það þá má nefna að margir af þessum strákum koma að yngri flokka þjálfun hjá okkur og núna um daginn sköpuðu þeir, að eigin frumkvæði, frábæra umgjörð fyrir 4. flokkinn okkar sem er kominn í bikarúrslit. En að leiknum sjálfum. Verkefnið er stórt, hálf-atvinnumannalið að norðan bíður en við erum hvergi bangnir og með ykkar stuðningi getur allt gerst!

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.