Jólin fóru misvel í Danann í Mosfellsbænum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Oscar Lykke (Egill Bjarni Friðjónsson)

Eftir þrjú töp í röð í Olís-deildinni vann Afturelding loksins sigur en torsóttur var hann, sigurinn gegn Stjörnunni í 19.umferð Olís-deildar karla í síðustu viku 29-28 þar sem Stjarnan hafði undirtökin lengst af í leiknum.

Farið var yfir sigur Aftureldingar í Handboltahöllini sem sýnd er öll mánudagskvöld í Sjónvarpi Símans í opinni dagskrá.

,,Oscar Lykke átti sinn besta leik síðan fyrir jól og hann skoraði fimm mörk úr fimm skotum. Það var gaman að sjá til hans," sagði Hörður Magnússon þáttastjórnandi Handboltahallarinnar.

,,Jólin fóru misvel í hann og vonandi hefur kviknað á honum aftur. Hann henti í fimm mörk úr fimm skotum í þessum leik og var fjölhæfur og hreyfanlegur. Hann er að detta aftur í stand," sagði Einar Ingi um Danann sem gekk í raðir Aftureldingar í sumar.

Afturelding er í 4.sæti Olís-deildarinnar með 25 stig þegar þrjár umferðir eru eftir af deildinni. Afturelding mætir FH næst í Kaplakrika og eiga síðan Þór og Selfoss, nýliðana eftir áður en úrslitakeppnin hefst.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top