FH (J.L.Long)
Það verður hart barist á Ásvöllum í kvöld þegar Hafnarfjarðarliðin, Haukar og FH mætast í undanúrslitum Powerade-bikarsins klukkan 18:00. Síðar um kvöldið mætast síðan KA og ÍR klukkan 20:15 í hinum undanúrslitaleiknum. Einhverjir vilja meina að Haukar hafi forskot á FH-ingana í leiknum í kvöld þar sem bikarúrslitahelgin fer fram á þeirra heimavelli en hvað segir sagan okkur. Jú sagan segir okkur að Haukum hefur gengið illa með FH á heimavelli síðustu tíu ár. Ef skoðaðir eru 12 síðustu leikir liðanna til ársins 2016 sem hafa farið fram á Ásvöllum þá hefur Haukum einungis tekist að vinna FH tvívegis á heimavelli. Haukar unnu nefnilega tvo heimaleiki í röð gegn FH 15. maí 2021, 34-26 og síðan aftur 10. apríl 2022, 32-31. FH-ingar hafa hinsvegar unnið sex af síðustu tólf leikjum liðanna á Ásvöllum og fjórum sinnum hafa liðin gert jafntefli. Hvað gera Haukamenn á heimavelli gegn FH-ingum í alvöru Hafnarfjarðarslag í undanúrslitum Powerade-bikarsins í kvöld? Liðin mættust á sama stað fyrir viku síðan og þar fór FH með sigur af hólmi 25-32.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.