Hápunktar úr leikjum gærdagsins í Meistaradeildinni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Paulo Pereira (Alex Nicodim / NurPhoto via AFP)

Þrír leikir fóru fram í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í gær þegar 12. umferðin hófst. Fimm leikir verða síðan á dagskrá í kvöld þegar 12. umferðin lýkur.

Tvö Íslendingalið voru í eldlínunni í gær en Bjarki Már Elísson var hinsvegar ekki með Veszprém þegar þeir unnu Dinamo Bucuresti á heimavelli 35-28. Norska félagið Kolstad tapaði síðan á heimavelli gegn Nantes 26-33. Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði sex mörk í leiknum og Sigurjón Guðmundsson varði eitt skot.

Benedikt Gunnar Óskarsson leikmaður Kolstad er frá keppni vegna meiðsla.

Hér að neðan má sjá hápunkta úr leikjum gærkvöldsins:

Kolstad - Nantes 26-33

Veszprém - Dinamo Bucuresti 35-28

GOG - Eurofarm Pelister 28-28

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top