Bjarki Már frá keppni næstu vikurnar
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Bjarki Már Elísson (JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP)

Bjarki Már Elísson leikmaður íslenska landsliðsins og ungverska stórliðsins, ONE Veszprém verður frá keppni næstu vikurnar eftir meiðsli sem hann hlaut í leik gegn Kielce í Meistaradeild Evrópu í síðustu viku. Þetta staðfesti hann í samtali við Handkastið.

Bjarki Már varð fyrir því að óláni að meiðast á 40. mínútu í leik Kielce og Veszprém er hann stóð í vörn Veszprém.

Sprunga myndaðist í sköflungsbeininu (tibia) en betur fór en á horfðist en atvikið leit ekki vel út við fyrstu sýn. Bjarki sagði að allt annað hafi sloppið vel eftir atvikið.

Bjarki Már sagði í samtali við Handkastið að gera mætti ráð fyrir því að hann verði frá keppni næstu fjórar vikur og því ljóst að hann verður ekki með íslenska landsliðinu í æfingaleikjunum tveimur gegn Svíþjóð hér á landi um miðjan mars.

Þá missir hann af síðustu leikjum Veszprém í Meistaradeildinni en liðið vann Dinamo Bucuresti á heimavelli í gærkvöldi og á liðið tvo leiki eftir í riðlakeppninni gegn Nantes og Álaborg.

Bjarki Már sem 36 ára í maí rennur út af samningi hjá Veszprém í sumar og er framtíð hans óljós eins og Handkastið greindi frá á dögunum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top