Victor Norlyk (Bertel Bolt / Mors-Thy)
Markahæsti leikmaður dönsku úrvalsdeildarinnar, leikstjórnandinn Victor Norlyk leikmaður Mors-Thy hefur verið seldur til franska stórliðsins Nantes og gengur í raðir félagsins næsta sumar. Norlyk gerir fjögurra ára samning við Nantes eða til ársins 2030. Norlyk hefur farið á kostum í dönsku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð og er markahæsti leikmaður deildarinnar ásamt Frederik Bjerre leikmanns GOG en báðir hafa þeir skorað 186 mörk í deildinni. Norlyk hefur hinsvegar einungis skorað 56 mörk úr vítaköstum á meðan Bjerre hefur skorað 98 af 186 mörkum sínum af vítalínunni. Auk þess að vera markahæstur í deildinni er hann þriðji stoðsendingahæsti leikmaður deildarinnar. Norlyk var á samning hjá Mors-Thy til ársins 2027 en danska félagið ákvað að standa ekki í vegi fyrir draumum leikmannsins og yfirgefur hann félagið strax í sumar. Norlyk lýsir yfir ánægju sinni og þakklæti fyrir tækifærið og segir að það hafi mikla þýðingu fyrir hann að fá að elta draum sinn um að spila á háu stigi erlendis. Hann rifjar upp fimm frábær ár hjá Mors-Thy auk æskuáranna hjá HF Mors og Mors-Thy akademíunni, og segir það verða tilfinningalegt að kveðja félagið og fólk þar. Mors er í 5.sæti dönsku úrvalsdeildarinnar með 27 stig, jafn mörg stig og Skjern og GOG en liðið vann Skjern í gærkvöldi 28-30 á útivelli.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.