Verða þjálfaraskipti í París annað árið í röð?
{{brizy_dc_image_alt entityId=


Spánverjinn, Roberto Garcia Parrondo þjálfari Melsungen í þýsku úrvalsdeildinni er orðaður við franska stórliðið Paris Saint-Germain. 

Það er Rthandball sem greinir frá þessu á samfélagsmiðli sínum.

Spánverjinn tók við Melsungen sumarið 2021 og er að klára sitt fimmta tímabil hjá félaginu. Miklar breytingar hafa orðið á liði Melsungen frá síðasta tímabili og þá hafa lykilmenn verið meiddir. Melsungen er um þessar mundir í 8.sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með 26 stig.

Parrondo var áður þjálfari Vardar og egypska landsliðsins á árunum 2019-2023.

Daninn, Stefan Madsen tók við þjálfun PSG síðasta sumar en illa hefur gengið hjá liðinu í Meistaradeildinni undir hans stjórn.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top