Mjög svekktur og hundfúll – Vorum lélegir í dag
Egill Bjarni Friðjónsson

KA þurfti að bíta í það súra epli að falla úr leik í Powerade-bikarnum eftir tap gegn ÍR með einu marki í undanúrslitum í kvöld. KA var meira og minna undir allan leikinn í kvöld en fyrirfram var búist við sigri KA í leiknum gegn botnliði ÍR í Olís-deildinni.

,,Ég er mjög svekktur og hundfúll. Við vorum lélegir í dag en ég vil óska ÍR til hamingju, þetta var fúlt," sagði Andri Snær Stefánsson þjálfari KA í viðtali við Handkastið eftir leik.

,,Við náðum ekki að stjórna okkar hlutum fyrr en alltof alltof seint í leiknum en þetta er margþætt. Við byrjuðum sóknarlega afleitlega og vorum mjög hikandi og ragir. Síðan þegar sóknin fer að rúlla þá erum við í basli varnarlega. Jökull skýtur okkur í kaf og við vorum ekki alveg að tengja en síðan fannst mér vörnin vera að smella á köflum en síðan skora þeir mörg mörk þegar höndin er komin upp hjá dómurunum og svo framvegis, það var svekkjandi."

KA komst yfir í fyrsta og eina skiptið í leiknum í stöðunni 29-28.

,,Síðan erum við komnir með mómentið með okkur og komnir yfir og fáum 3-4 dauðafæri í sömu sókninni til að komast aftur yfir þegar 1 og hálf mínúta var eftir. Við getum verið svekktir að hafa ekki lokað þessu. Við vorum bara ekki nægilega góðir í dag og það svíður gríðarlega. Við vissum að ÍR-ingarnir eru stórhættulegir og eru með þannig byssur að ef þeir fá sjálfstraust og fá sín skot, sinn hraða og sín svæði þá eru þeir drullu erfiðir."

Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top