Spáð í spilin fyrir úrslitaleikinn
ADA)

Haukar og ÍR mætast í úrslitum Powerade-bikars karla í kvöld klukkan 18:30 á Ásvöllum. Haukar unnu FH í undanúrslitum á fimmtudagskvöldið á meðan ÍR vann KA með einu marki.

Liðin hafa mæst tvívegis í vetur og hefur Haukar haft betur í báðum leikjunum nokkuð sannfærandi. Haukar unnu fyrri leik liðanna 44-28 og þann seinni 39-31.

Handkastið hefur fengið nokkra spekinga til að spá í spilin fyrir leiki kvöldsins. 

Einar Jónsson - Þjálfari ríkjandi Íslands- og bikarmeistara Fram:
Haukar - ÍR 35 - 25

Því miður fyrir hlutlausa þá verður þetta frekar auðveldur leikur fyrir Hauka. Vona hins vegar að ÍR nái að gera leik úr þessu.

Ásbjörn Friðriksson - Fyrrum leikmaður FH:
Haukar - Valur 34 - 28

Reynslan í Haukaliðinu mun nýtast þeim vel í þessum leik og ef þeir ná fram sama varnarleik og markvörslu og í undanúrslitunum munu þeir vinna sannfærandi sigur. ÍR-ingar gerðu mjög vel á móti KA í undanúrslitunum, en það verður við ofurefli að etja í úrslitaleiknum.

Tandri Már Konráðsson - Leikmaður Stjörnunnar:
Haukar - ÍR 32 - 26

ÍR-ingar komu virkilega á óvart í leiknum gegn KA. Þetta var einn af þessum leikjum þar sem allt gekk upp, bæði sóknar- og varnarlega. Ég spái því þó að Haukar verði of stór biti fyrir ÍR-inga. Haukarnir litu mjög vel út varnarlega og ef þeir ná upp sömu stemningu og ákefð og í leiknum gegn FH spái ég því að þeir vinni þennan leik nokkuð örugglega.

Halldór Jóhann Sigfússon Þjálfari HK:
Haukar - ÍR 33 - 30

Spáin er 33-30 fyrir Hauka eftir hörku leik. Þetta verður mjög hraður leikur en bæði lið eru góð að keyra á hröðum upphlaupum. Vonandi ná ÍR ingar að halda töpuðum boltum í lágmarki en ef það gerist ekki þá gæti þetta orðið erfitt fyrir þá. Haukarnir virkuðu mjög þéttir á móti FH og eru sigurstranglegri fyrirfram en allt getur gerst í bikarnum og hver leikur á sitt líf.

Styrmir Sigurðsson - Handkastið:
Haukar - ÍR 35 - 27

ÍR kom öllum a óvart með að komast í bikarúrslitin og það mestmegnis án Baldurs Fritz. Ef satt reynist sem Bjarni sagði að hann reiknaði ekki með Baldri í úrslitaleiknum þá verður þetta erfitt verkefni. Haukar á heimavelli og þyrstir í titil og þekkja hverja fjöl á Ásvöllum og eru með klefann líka. Óttast að ÍR verði saddir þegar leikurinn byrjar og sáttir með silfrið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top