Adam Haukur Baumruk varð í gær bikarmeistari með uppeldisfélagi sínu Haukum eftir sigur á ÍR 28-21. Adam var einnig í leikmannahópi Haukar þegar þeir urðu síðast bikarmeistarar tímabilið 2013/2014 undir stjórn Patreks Jóhannessonar. Adam var eini leikmaðurinn í leikmannahópi Hauka í gær sem einnig varð bikarmeistari með liðinu tímabilið 2013/2014 en þá unnu Haukar einnig ÍR í úrslitaleik bikarsins 22-21. ,,Þetta er ljúft við höfum beðið lengi eftir þessu og loksins tókum við þetta," sagði Adam í viðtali við Handkastið eftir leikinn í gær. Adam Haukur náði þó ekki að afreka það að skora í báðum bikarúrslitaleikjunum en hann hefur látið meira að sér kveða í varnarleik Hauka undanfarin tímabil. Adam Haukur sem er fæddur árið 1994 rennur út af samningi við Hauka eftir tímabilið. Náði hann að miðla eitthvað af sinni reynslu til yngri leikmanna Hauka í aðdraganda leiksins? ,,Við þurftum bara að leikgreina þá og spila okkar besta leik eins og við gerðum í dag. Við þurfum að byggja ofan á þessu og halda áfram okkar takti. Við megum ekki hætta og sjá hvað gerist," sagði Adam að lokum aðspurður út í framhaldið af tímabilinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.