20.umferðin í Olís-deild karla hefst í kvöld þegar nýliðar Þórs fá nýkrýnda bikarmeistara Hauka í heimsókn í Höllina á Akureyri. Fjórir leikir fara síðan fram annað kvöld og 20.umferðin lýkur síðan á föstudaginn þegar Stjarnan fær KA í heimsókn. Mikil spenna ríkir í Olís-deildinni, Valur er á toppi deildarinnar með þriggja stiga forskot á FH sem er í 2.sætinu. Valur fær Íslands- og bikarmeistara Fram í heimsókn annað kvöld. Þá ríkir mikil spenna bæði á botni deildarinnar og um síðasta lausa sætið í 8-liða úrslit Íslandsmótsins. Handkastið hefur tekið saman 10 markahæstu leikmenn Olís-deildarinnar eftir 19 umferðir:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.